Episodes

3 days ago
3 days ago
58 min
Hæ elsku gullið mitt og velkomin í munum spjallið! 💛
Í þessum fyrsta þætti læt ég loksins vaða, með fiðrildi í maganum og efasemdaraddirnar í höfðinu. Því hugrekki er einmitt það að finna fyrir óttanum en gera það samt.
Ég segi þér aðeins frá mér, munum vegferðinni og því sem mig langar að skapa með munum spjallinu, rými þar sem við getum lært, vaxið og fundið leiðir til að lifa og líða betur, bæði í sál og líkama.
Við tölum um alla hattana sem við berum, draumana okkar og hvað gerist þegar við setjum okkur sjálf alltaf síðast á listann.
Hvað myndi gerast ef þú myndir byrja á þér? Taka lítil skref í átt að þeirri manneskju sem þú vilt vera og því lífi sem þig dreymir um að lifa.
Ég held með þér alla leið!
Vinnublað fyrir stöðumat